Loftmynd
Lagalisti:
01. Við Birkiland 02. Björg 03. Plastpokablús 04. Skúli fógeti 05. Á horninu 06. Ástarsaga 07. Magister Lyngdal 08. Jón 09. Nótt 10. Enginn vegur fær 11. Veinaðu úlfur úlfur 12. Það sem best er 13. Börn í borg 14. Reykjavíkurnætur 15. Björt ljós borgarljós 16. Innréttingarblús 17. Fílahirðirinn frá Súrín 18. Reykjavíkurnætur (demó)
Platan var endurútgefin árið 2002 af Íslenskum tónum.
Textabrot úr Loftmynd:
Plastpokablús
Ég er plastpokamaður og plastpoka syng ég blús og ég plata litlar konur til að komast einhversstaðar í hús
Með viðkomu á Hlemmi leið mín liggur í Glæsibæ og ég legg þar net mín og nóga veiði ég fæ
Uppí Gólanhæðum hafast þessar dömur við í hálfkláraðri íbúð sem þær fengu uppí meðlagið
Einar með króana karlinn hann sagði bless og ég kem þar inn með pokann og og pæli ekki í því er bara hress
Og ég fíla ekki ávexti fornra ásta ég var ekki þar og ég flæmi börnin út og oní miðstöðvarkompurnar
Loks fæ ég mér í glas og gleðskapnum linnir seint ég geng í skrokk á dömunni en það er ekki illa meint
Liðið af Hlemmi þiggur heimboð hjá frúnni og mér það hefur vetursetu meðan seðlar eru til og gler
Loks redda ég kaupanda það er langrum betra að leigja sér bara smærra og daman lendir á bænum en ég flýg á braut með féð hærra og hærra
Ég er plastpokamaður og plastpoka söngla ég blús og ég plata litlar dömur til að komast einhversstaðar í hús
Og ég drekk og drekk og drekk uns þorrinn er mér allur kraftur ég enda loks uppá Vogi og þar væli ég mig alhvítan aftur
|